no image

Fylgja minningarsíðu

Þórður Ægir Jensson Tóti

Fylgja minningarsíðu

5. júní 1971 - 3. febrúar 2026

Andlátstilkynning

Elskulegur kærasti minn, faðir okkar og bróðir, Þórður Ægir Jensson, Tóti, lést þann 3.febrúar eftir skammvinn veikindi.

Útför

12. febrúar 2026 - kl. 13:00

Útförin fer fram frá Seltjarnarneskirkju fimmtudaginn 12.febrúar, kl.13:00

Hlekkur á streymi
Aðstandendur

Íris Dögg Jóhannesdóttir Jens Heiðar Þórðarson Hjelm Ísfold Tara Þórðardóttir Hjelm Guðný Carmen Þórðardóttir Hjelm Edda Margrét Jensdóttir Sesselja Hrönn Jensdóttir Jens Óðinn Jensson

Þakkir

Kærar þakkir fyrir hlýhug og kveðjur 🩵 Þeim sem vilja minnast Tóta er bent á styrktarreikning barnanna hans 🩵Kt.270108-2610 Reikningsnr. 0370-22-128491

Vinarkveðja

Það er með djúpri sorg í hjarta sem við minnumst vinar okkar, Þórðar Ægis Jenssonar, sem féll frá eftir stutta baráttu við erfið veikindi þann 3. febrúar síðastliðinn. Þórður, eða Tóti eins og hann var alltaf kallaður af vinum sínum, var einstakur maður sem bar húmorinn jafnan með sér, sama hvað á bjátaði.

no image

Bæta við leslista

Elsku Tóti ❤️

Hann var sannkallaður þúsundþjalasmiður – maður sem gat allt og gerði allt. Hann aðstoðaði okkur við ótal verkefni, bæði innan- og utanhúss. Honum fannst stundum óþarfi að flækja hlutina; hann skildi eiginlega ekki þessa áráttu okkar að teikna allt upp og plana fram í rauðan dauðann. Ef þurfti að smíða pall eða baðherbergi, þá bara smíðar maður það – svona einfalt var það í hans huga. 

no image

Bæta við leslista

Elsku hjartans Tóti minn

Hjarta mitt er í molum, ég sakna þín svo mikið.

no image

Bæta við leslista

Elsku Tóti vinur minn 🩵

Kveðja frá Steina🩵

no image

Bæta við leslista

VInarkveðja.

Mig langar að kveðja vin minn, hann Þórð Ægi Jensson – okkar Tóta Jens – sem er farinn á vit hins ókunna, allt of snemma.

no image

Bæta við leslista

Tóti vinur minn

Ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi að kynnast Tóta þegar ég flutti út á Seltjarnarnes fyrir rúmum tíu árum síðan og datt þar inn í einstakan hóp drengja. Nú er stórt skarð hoggið í þennan hóp við fráfall Tóta en við eigum ótal minningar um hann sem eiga eftir að koma upp í samtölum um ókomna tíð. Tóti var uppalinn á Seltjarnarnesi og fékk maður oft að heyra frá prakkarastrikum hans í æsku og allskonar fróðleik um Nesið í gamla daga.

no image

Bæta við leslista

Góður vinur með hlýtt hjarta og faðmlag

Það er sárt að kveðja góðan vin sem kveður allt of fljótt. Við kynntumst Tóta þegar hann og Íris Dögg, vinkona okkar, felldu hugi saman. Við sáum fljótt hve góðan mann hann hafði að geyma. Við hjónin vorum svo glöð að þau fundu ástina og hvort annað. Íris og Tóti fengu of skamman tíma saman en náðu að gera ótrúlega margt. 

no image

Bæta við leslista

Minning um Tóta

Það er erfitt að kveðja Tóta vin okkar. Hann kom inn í líf elsku Írisar okkar fyrir um þremur árum og varð fljótt kærasti hennar, félagi og traustur stuðningur. Með tímanum varð hann einnig hluti af fjölskyldunni okkar. Hann reyndist okkur öllum vel og kom alltaf fram af hlýju og virðingu.

no image

Bæta við leslista

Kæri Tóti

So many times, it happens to fast,

Bæta við leslista

Elsku vinur hvíldu í friði

Elsku vinur okkar hann Tóti var færður til hinstu hvílu í dag. Við kynntumst Tóta fyrir 3 árum þegar hann fór að vera með Írisi okkar. Tóti var dásamlegur vinur, alltaf gaman í kringum hann og brölluðum við margt saman. Bústaðaferðir, tónleikar, alltof dýrt út að borða og margt fleira, alltaf var gaman. Við erum ótrúlega þakklát í dag að hafa verið með þér og Írisi á Sikiley ásamt fleira fólki fyrir bara 3 mánuðum að halda uppá 50 ára afmæli Írisar þinnar. Þetta var dásamleg ferð og minningarnar úr ferðinni eru ennþá dýrmætari í dag. Elsku Tóti okkur finnst þetta svo sárt og ósanngjarnt, þið Íris nýbúin að finna hvort annað og voruð svo ástfangin. Takk fyrir dásamlega vináttu. Við munum passa uppá Írisi þína fyrir þig. Þangað til að við hittumst aftur segjum við bara skál og "gleymdu hugmyndinni"

Bæta við leslista

Kveðja

Það er með sorg og söknuði sem ég kveð vin minn Þórð Ægi Jensson. Hann er lagður upp í sitt hinsta ferðalag, sá mikli ævintýramaður. Tóti eins og hann var ætíð kallaður var ljúfur, glaðlyndur, hjálpfús, hugmyndaríkur, rausnarlegur og pabbabrandarameistari með meiru. Það var svo gaman í kringum Tóta, engin lognmolla, alltaf að gleðja fólk og koma á óvart. Það er undarlegt til þess að hugsa að maðurinn sem hafði viðkvæðið: Lífið er núna, segjum já, sé farinn. Tilhugsunin er þyngri en tárum tekur.

no image

Bæta við leslista