no image

Fylgja minningarsíðu

Jón Sveinn Friðriksson

Fylgja minningarsíðu

12. ágúst 1945 - 25. júní 2026

Andlátstilkynning

Okkar yndislegi faðir, tengdafaðir, afi og langafi Jón Sveinn Friðriksson Múrari Kirkjusandi 5, 105 Reykjavík lést á Hrafnistu við Skógarbæ 25. júní s.l.

Útför

Útför hefur farið fram.

Aðstandendur

Kristín Gunný Jónsdóttir Hafsteinn Eyvindsson Herdís Sölvína Jónsdóttir Friðrik Ellert Jónsson Vilborg Stefánsdóttir Gunnar Örn Jónsson Jóna Guðný Arthúrsdóttir barnabörn og barnabarnabörn.

Elsku Pabbi minn

Pabbi var einstakur maður og þegar ég hugsa til hans er það fyrst og fremst hlýjan, góðmennskan og óeigingirnin sem koma upp í hugann. Hann var maður sem lifði fyrir fjölskylduna sína og allt sem hann gerði bar þess merki að honum var umhugað um fólkið sitt. Það var honum einfaldlega eðlislægt að hugsa um aðra áður en hann hugsaði um sjálfan sig.

no image

Bæta við leslista