no image

Fylgja minningarsíðu

Jón Halldórsson

Fylgja minningarsíðu

29. maí 1948 - 17. ágúst 2026

Andlátstilkynning

Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi. Lést þann 17 ágúst 2026 í faðmi fjölskyldunnar.

Útför

7. september 2026 - kl. 13:00

Útför fer fram í Kópavogskirkju.

Aðstandendur

Guðlaug Skúladóttir, Harpa Rós Jónsdóttir, Hulda Björk Jónsdóttir, Birna Guðrún Árnadóttir, Belinda J. Ottósdóttir, Einar Þór Stefánsson, Ragnar Halldór Eiríksson, Konráð Gylfason, barnabörn og barnabarnabörn.

Þakkir

Þökkum starfsfólki Hrafnistu, Sléttuvegi sérstaklega fyrir hlýju síðustu sex ár.

Elsku pabbi

Hann pabbi var hæverskur, kíminn og einstaklega viðkunnanlegur. Hann var bridge maður mikill og fór gjarnan á mót með góðum vinum sínum. Hann naut sín einnig við skákborðið og á golfvellinum. Pabbi elskaði fátt meira en útiveruna og fór hann alla sína tíð í ferðalög um Ísland og gekk yfir fjöll og firnindi. Ættjarðarást hans birtist einnig í áhuga á ljóðlist og var Þorsteinn Erlingsson meðal uppáhalds skálda hans. Hann skar gjarnan ljóðlínur Þorsteins út í hillurnar sem hann smíðaði, þar á meðal orðin: „Hárra fjalla frægðaróð, fossarnir mínir sungu.“ Þessi orð prýða síðustu hilluna sem hann gerði, árið 2019, ásamt útskorinni mynd af Goðafossi.

Bæta við leslista