Fylgja minningarsíðu
Jóhanna Bára Sigurðardóttir
Fylgja minningarsíðu
17. mars 1935 - 27. nóvember 2025
Útför
Útför hefur farið fram.
Elsku Mamma
Elsku mamma mín. Þessi nýi veruleiki er svo erfiður og ég er ennþá lítandi á klukkuna níu á morgnana til að hringja í þig og bíð við símann á kvöldin til að bjóða góða nótt.
Bæta við leslista
Tengdamamma
Elsku besta Bára, það var mér mikill hvalreki að eignast þig sem tengdamóður og við áttum saman margar góðar stundir síðustu árin. Þar sem við erum lítil fjölskylda er gott að geta verið í góðum samskiptum. Það var alltaf stutt í nærveru og félagsskap þar sem þú bjóst á neðri hæðinni hjá okkur og yndislegt að sjá hversu góð áhrif þú hafðir á strákana okkar og okkur Anítu. Borðuðum saman fjölskyldan, spjölluðum, spiluðum, ferðuðumst og gátum verið hvert fyrir annað í gegnum súrt og sætt. Það var léttur andi yfir þér og stutt í hæðnislegan húmor þinn sem ég kunni vel að meta. Þú varst mikil guðsgjöf og varst með húmor og skýr í kollinum fram á síðasta dag. Er þakklátur fyrir að hafa haft þig í lífi okkar fjölskyldunnar síðustu árin. Guð gefi þér ljós og frið elsku tengdamamma mín.
Bæta við leslista
Besta Amma mín
Elsku amma mín besta, við eyddum ótrúlega miklum tíma saman og er ég virkilega þakklátur fyrir allan þann tíma. Við vorum alltaf að spila saman, fórum líka í tvær utanlandsferðir saman sem ég hugsa ennþá um í dag. Ekki nóg með það þá fórum við oft saman út í búð að versla í matinn, fórum oft í göngutúr saman þótt hann hafi ekki endilega verið langur. Þú vissir alltaf öll svörin við mínum vandamálum. Þegar ég kom þreyttur til þín þá sagðir þú mér að leggjast í sófann og komst svo með teppi og kodda og breiddir yfir mig. Þegar ég var svangur þá bauðstu mér brauð og mjólk, þegar mér leiddist þá baðstu mig að setjast og spila við þig. Þú þekktir mig manna best og kunnir einstaklega vel á mig. Ég sakna að geta bara ekki stokkið niður til þín og sagt þér frá deginum mínum, það var ábyggilega uppáhaldsparturinn af degi mínum að trítla niður til þín að spila og segja þér frá hvað ég gerði yfir daginn. Ég get ekki beðið eftir að fá að hitta þig aftur, kyssa og knúsa þig þegar minn tími kemur. Þú ert alltaf með mér.
Bæta við leslista
Elsku Amma mín
Elsku besta amma mín, hjartahlý og mikill húmoristi. Þú varst ekki bara amma mín heldur líka besta vinkona mín. Þú kenndir mér að spila ólsen-ólsen þegar ég var lítill gutti og svo kenndirðu mér að gera bestu pönnukökur Íslands á táningsárum. Þú kenndir mér einnig hvað það þýðir að vera partur af fjölskyldu. Síðustu 11 árin heima hjá okkur voru æðisleg með þér. Að spjalla við þig um lífið og allt milli himins og jarðar. Það var mikið keppnisskap í þér þegar við spiluðum saman og svo var okkar tími í pönnukökubakstri mér dýrmætur. Sama hverju lífið henti í mann þá varst þú alltaf til staðar, hugsaðir um alla aðra fram yfir þig. Kvöldið áður en þú kvaddir okkur varstu með meiri áhyggjur af þurrum vinnuhöndunum mínum en af sjálfri þér. Þú varst mesti dugnaðarforkur sem ég hef kynnst og þú kenndir mér að vera duglegur og halda áfram sama hvað, og það mun ég gera. Ég mun sakna þess að fá ekki að knúsa þig og kyssa á hverjum degi, að spila við þig, segja þér frá öllu slúðrinu í lífinu mínu, leyfa þér að smakka á pönnukökunum okkar og gefa þeim einkunn, það er holrými sem þú skilur eftir sem er ekki hægt að fylla. Ég elska þig elsku amma mín, og er þakklátur fyrir að hafa fengið að fylgja þér síðasta spölinn, þú ert ljós augna minna og ég bíð spenntur eftir því að segja þér frá öllu slúðrinu þegar minn tími kemur og ég fæ að knúsa þig og kyssa aftur.
Bæta við leslista