no image

Fylgja minningarsíðu

Emelía Mist Kjartansdóttir

Fylgja minningarsíðu

23. mars 2012 - 17. desember 2025

Andlátstilkynning

Elskuleg dóttir okkar, systir og barnabarn lést 17. desember. Minningarathöfn fer fram í Bústaðarkirkju föstudaginn 9. janúar kl. 15.

Útför

9. janúar 2026 - kl. 15:00

Útförin fer fram í Bústaðarkirkju föstudaginn 9. janúar kl. 15

Aðstandendur

María Sif Ericsdóttir - Eysteinn Orri Gunnarsson Kjartan Guðmundsson Alexandra Björk Birgitta Dís - Sveinn Atli Tryggvi Bragi Ísleifur Gunnar Eric Tryggvi Guðmundur Æ.

Til elsku Emelíu

Ég get enn ekki trúað því að þú sért virkilega farin. Það verður að eilífu partur af mér sem var tekinn frá mér daginn sem þú fórst. Parturinn af mér sem var skapaður úr öllum okkar tíma saman. Parturinn sem var skapaður þegar við vorum litlar stelpur hlaupandi um húsið í prinsessukjólum og þegar við fórum alltaf saman í sund, að þykjast vera hafmeyjur. Ég sakna hlátursins þíns þegar við vorum að gera allt og ekkert. Brosið þitt, knúsin þín og þú. Þú sem varst alltaf til staðar fyrir mig, að eilífu. Ég óska þess að ég hefði getað gert eitthvað til að koma í veg fyrir hvað gerðist, ég óska þess að ég hefði getað hitt þig meira. Ég mun aldrei gleyma þér Emelía, ég lofa því. Elska þig að eilífu.

no image

Bæta við leslista